Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu
Your Guide to Traveling Italy

Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu

"Ítalía heillar" er hlaðvarp fyrir ferðalanginn sem ætlar í sína fyrstu heimsókn til Ítalíu og einnig fyrir ferðalanginn sem vill vita enn meira. Margrét Gunnarsdóttir (Magga), veitir innsýn í ítalska menningu, hagnýt ferðaráð og deilir fróðleik um sérkenni þessa heillandi lands.

Play Latest Episode

Recent Episodes

12
Oct. 14, 2026

12. Napólí II - Hjátrúin, tónlistin, fótboltinn og pizza

Í öðrum þætti um Napólí kynnumst við litríkri menningu borgarinnar þar sem trú og hjátrú, tónlist, fótbolti og matur fléttast saman á einstakan hátt. Við kynnumst scaramanzia, napólískri hjátrú, rauða verndargripnum cornicello, Pulcinella og San Gennaro, verndardýrlingi borgarinnar. Við heyrum líka af þeirri óvenjulegu hefð að „ættleiða“ höfuðkúpur látinna og biðja þær um vernd. Síðan tekur tónlistin við. Napólí gaf heiminum meðal annars 'O sole mio og Funiculì, Funiculà, auk stórstjarna á bor
11
Oct. 7, 2026

11. Napólí I – Fleira en bara pizza og Vesúvíus

Napólí er borg sem erfitt er að lýsa í fáum orðum. Hún er hávær, litrík, óreiðukennd, söguleg – og umfram allt full af lífi. Í þessum fyrsta þætti um Napólí förum við í ferðalag um meira en 2.500 ára sögu borgarinnar. Við byrjum hjá Grikkjum og sírenunni Parthenope, kynnumst Rómverjum, Normönnum, Spánverjum og Bourbon-konungum og komum við sögu hjá byltingarmanninum Masaniello og þjóðhetjunni Giuseppe Garibaldi. Við rifjum einnig upp hina dramatísku fjóra daga Napólí í síðari heimsstyrjöldinn
10
Sept. 9, 2026

10. Með lest um Ítalíu – Buon viaggio!

Í þessum þætti af Ítalía heillar er haldið “á teinana” og farið yfir allt það helsta sem gott er að vita um lestarferðir á Ítalíu. Lestir eru frábær leið til að ferðast á milli ítalskra borga – en kerfið getur virst dálítið flókið í fyrstu. Fjallað er um mismunandi tegundir lesta, allt frá glæsilegum Frecciarossa-háhraðalestum til héraðslesta sem fara hægar yfir og stoppa nánast við hvert ólífutré. Skoðað er hvernig og hvar best er að kaupa miða, hvað þarf að hafa í huga við bókun og hvers ve
9
Sept. 2, 2026

9. Á fjórum hjólum um Ítalíu – allt sem þú þarft að vita um bílaleigu

Að leigja bíl á Ítalíu getur verið bæði spennandi og svolítið stressandi. Í stórborgum eins og Róm, Flórens, Mílanó og Napólí er oft mun skynsamlegra að treysta á lestir og almenningssamgöngur. En þegar ferðinni er heitið út í sveitirnar, til lítilla þorpa, vínekranna í Piemonte, fjallanna, strandbæjanna eða svæða þar sem lestir og rútur eru af skornum skammti, getur bílaleigubíllinn orðið lykillinn að allt annarri Ítalíu. Í þessum þætti af Ítalía heillar förum við yfir það helsta sem gott er
8
Aug. 26, 2026

8. Róm III - Skemmtileg torg, götur, söfn og frægir staðir í Róm. Hvernig forðastu langar biðraðir?

Í þessum þriðja og síðasta þætti um Róm, beinum við sjónum að borginni sjálfri – frægustu stöðunum, torgunum, götunum, mörkuðunum og matarmenningunni. Við heimsækjum meðal annars Colosseum, Forum Romanum, Pantheon, Vatíkanið, Péturskirkjuna og Trevi-gosbrunninn og fáum hagnýt ráð um miðakaup, biðraðir og hvernig best er að skipuleggja heimsóknir á vinsælustu staðina. Við röltum líka um falleg torg og götur, skoðum verslunarhverfi og markaði og leitum að stöðum þar sem Rómverjar sjálfir
7
Aug. 19, 2026

7. Róm II - “Ekkert stress”– samgöngur, hverfi og góð ráð

Í þessum öðrum þætti um Róm förum við yfir hagnýt atriði sem geta gert ferðina einfaldari og ánægjulegri. Fjallað er um hvernig best er að komast frá Fiumicino-flugvelli inn í borgina með Leonardo Express, FL1-lestinni, rútu eða leigubíl og hvaða leið hentar eftir staðsetningu gististaðar. Við skoðum ólík hverfi Rómar, meðal annars Testaccio, Monti, Trastevere og Prati, og bent á mikilvægi þess að velja gistingu með góðu aðgengi að almenningssamgöngum. Við ræðum um vasaþjófa og hvernig verja